Íslenska „Bragðið í baráttunni“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Þórunn Steinsdóttir og Lukka Pálsdóttir

Ein sú bóka sem hvað mest er spurt um hér á útgáfunni er matreiðslubókin Bragð í baráttunni sem út kom árið 2009. Sú bók sló rækilega í gegn og seldist upp, en umfjöllunarefnið þar var matur sem talinn er vinna gegn krabbameini, bæði uppskriftir og fróðleikur um virkni ýmissa næringarefna. Það gleður okkur því mikið að nú er komin út íslensk bók um þetta sama efni.

Í bókinni Máttur matarins er að finna fróðleik og frábærar uppskriftir fyrir þá sem vilja nýta matinn sem forvörn í baráttu sinni við krabbamein og ýmsa lífsstílssjúkdóma. Meðal efnis í bókinni eru kaflar um vöxt krabbameina, bólgur og bólguvarnir, erfðir, föstur, Miðjarðarhafsmataræði, andoxunarefni og virkni ótal hrá- og næringarefna sem stuðlað geta að bættri heilsu og langlífi.
Höfundar bókarinnar eru reynslumiklir og ástríðufullir fræðarar á þessu sviði, Þórunn Steinsdóttir og Lukka Pálsdóttir og bókin sjálf hinn glæstasti gripur. Uppskriftirnar eru hver annarri girnilegri og fræðslan á mannamáli.

Smelltu hér til að skoða sýnishorn úr bókinni.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd