Jón Hjartarson hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Jón Hjartar­son hlýtur Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar 2021 fyrir Troðningar. Ljóðabókin er gefin út á vegum JPV útgáfu. Jón Hjartarson var um árabil leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hefur leikið ótal hlutverk á sviði, í sjónvarpi, útvarpi og kvikmyndum. Jón er höfundur fjölmargra leikrita og leikgerða fyrir börn og fullorðna, auk barna- og unglingabóka. Hann hefur einnig skrifað samtalsbækur og samið fjölda skemmtiþátta, pistla og söngtexta. Troðningar er fyrsta ljóðabók hans.

Í dóm­nefnd sátu Sif Sig­mars­dóttir, Guð­rún Sól­ey Gests­dóttir og Ey­þór Árna­son.

Úr umsögn dómnefndar:

„Troðningar eftir Jón Hjartarson er kraftmikið verk um hið óvænta í hinu augljósa, fegurðina í hversdagsleikanum og mikilfengleika þess smáa.

Í bókinni fer Jón um víðan völl. En hvort sem yrkisefnið er náttúran, sagan eða samtíminn er sjónarhornið ávallt óvænt. Þekkt minni eru færð í nýjan búning. Kímnar hvunndagsmyndir eru dregnar upp innan um vísanir í stórskáldin. Hið hversdagslega verður ljóðrænt, hið háfleyga hversdagslegt.

Ljóðin eru í senn einföld og blæbrigðarík. Stíllinn einkennist af hugvitssemi og lipurð og er glettnin aldrei langt undan. Hvergi er þó slegið af ástríðunni fyrir efninu. Jón fer á flug í náttúruljóðum sínum. Þar lýsir hann gjarnan því sem fyrir augu ber á götum Reykjavíkur. Hann dregur upp skýrar myndir, ríkar af andrúmslofti, svo að borgin verður ljóðræn hvort sem um ræðir umferðaræðar eða Öskjuhlíð.

Í ljóðum sínum sýnir Jón fram á að í lífinu leynist margbreytileikinn oft í því einfalda. Þann mótsagnakennda sannleik má heimfæra á verkið Troðninga. Í einföldum myndum sem settar eru saman af hugkvæmni, hlýju og kímni leynist svo miklu meira en virðist við fyrstu sýn. “

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd