Karlsvagninn kemur út í Danmörku

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Danska forlagið Gyldendal hefur fest sér réttinn á nýjustu skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karlsvagninum. Bókin nýtur mikillar hylli hér heima og var hún meðal söluhæstu skáldverka fyrir síðustu jól. Kristín Marja á sér þegar dyggan aðdáendahóp í Danmörku en þar hafa komið út bækur hennar Karitas án titils, Óreiða á striga og Mávahlátur. Frændur vorir munu án efa taka Karlsvagninum vel enda er bókin afburðarvel skrifuð  og heillandi skáldsaga – þar beinir höfundurinn skáldskaparvopninu að innsta kjarna okkar og hreinlega sálgreinir íslensku þjóðina, svo vitnað sé í gagnrýni um verkið.

Bækur Kristínar Marju hafa nú verið gefnar út í Þýskalandi, Hollandi, Svíþjóð, Frakklandi og Noregi auk Danmerkur og brátt bætist Ítalía í safnið því von er á þarlendri þýðingu á skáldsögunni Mávahlátri sem kemur út á vegum forlagsins Elliot Edizione.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd