„… klikkar ekki nú frekar en fyrri daginn”

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Náttúrugripasafnið

Sigrún Eldjárn sendir í ár frá sér Náttúrugripasafnið, þykka bók í handhægu broti þar sem hver furðuatburðurinn rekur annan svo lesendur fá sífellt eitthvað nýtt að hugsa um. Bókin er sjálfstætt framhald Forngripasafnsins sem kom út í fyrra og Sigrún fer ekki leynt með að á næsta ári verði þríleiknum lokað með Listasafninu.

Í dómi sínum á Bókmenntavefnum í dag fagnar María Bjarkadóttir nýjustu sögu Sigrúnur og segir meðal annars: „Sögur Sigrúnar Eldjárn hafa fylgt íslenskum börnum í gegnum undanfarna áratugi og varla sú manneskja til sem þekkir ekki eitthvað af verkum hennar. Sigrún er þeim kostum gædd sem rithöfundur að geta haldið áfram ár eftir ár að skrifa bækur, sem verða þó aldrei endurtekningarsamar heldur eru alltaf jafn innblásnar og hugmyndaríkar. Frásagnargleði og virðing fyrir lesandanum ræður ríkjum og klikkar ekki nú frekar en fyrri daginn.“

Lesendur Sigrúnar fyrr og síðar, hvort sem þeir eru tíu ára eða fimmtugir, geta sannarlega tekið undir þetta!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd