Sofðu vel

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Erla

Svefn hefur löngum verið mannkyninu ráðgáta. Hvernig stendur á því að við missum meðvitund og tengsl við umheiminn að minnsta kosti einu sinni á sólarhring?

Hvað sem því veldur er samrómur um að nógur og góður svefn sé nauðsynlegur fyrir líkamlega og andlega heilsu, stuðli að góðum þroska barna og unglinga og sé almennt ein helsta undirstaða þess að lifa góðu lífi.

Erla Björnsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur í svefnmálum, sem heitir einfaldlega Svefn. Hún kemur út á Svefndeginum, föstudaginn 17. mars.

Mikil vakning hefur orðið um hluta svefns í heilbrigðum lífstíl undanfarin ár en þetta er eitthvað sem kemur okkur bókstaflega öllum við.

Okkur hættir til að taka svefninum sem sjálfsögðum hlut og jafnvel vanrækja hann t.d. á kostnað vinnu. Oft er það í raun ekki fyrr en við erum orðin svefnvana sem að við áttum okkur á því hvað hann er okkur mikilvægur.

Við hvetjum alla, hvort sem þeir eigi við sérstök svefnvandamál að stríða eða ekki, til þess að kynna sér svefnbók Erlu og stuðla að bættri líðan hjá sjálfum sér og öðrum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd