Lesum saman

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Lestur er lykill

Nú á að vera kominn inn á hvert heimili nettur bæklingur sem ber yfirskriftina Lestur er lykill. Úgefendur eru Félag íslenskra bókaútgefenda, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Borgarbókasafnið og Barnabókasetur. Skilaboðin eru einföld: Lesum með börnunum okkar, lesum fyrir þau og hlustum á þau lesa sjálf. Lestur er nefnilega ekki bara lykill að öllum þeim upplýsingum sem geymdar eru á rituðu máli, í bókum eða á netinu, heldur líka svo mikilli ánægju og gleði, þekkingu og visku.

Í bæklingnum eru teknar saman nokkrar góðar ástæður fyrir því hvers vegna er hollt og gott að lesa með börnum, og gefin góð ráð um hvað ætti helst að lesa og hvernig best er að bera sig að. Þess utan eru gefnar hnitmiðaðar ábendingar um lestraruppeldi eftir því hversu gömul börnin eru.

Það er ósk þeirra sem að útgáfunni standa að allir gefi sér stutta stund til að glugga í bæklinginn og reikni eftir það með góðum tíma til að fara að ráðum hans, hvort sem þeir lesa fyrir sín eigin börn, barnabörnin, frækur eða frændur. Öll börn eiga skilið að fá sögur og ljóð – í morgunsárið eða fyrir svefninn – allan ársins hring. Gleðilega lestrarstund!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd