Lítil ljóðahátíð nyðra

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Stutt bókmenntahátíð sem ber hið hæverska nafn Litla ljóðahátíðin fer fram á Akureyri helgina 16. – 17. apríl. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en í ár koma fram: Sigurður Pálsson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Kristín Ómarsdóttir, Óskar Árni Óskarsson, Bragi Ólafsson, Haukur Ingvarsson, Magnús Sigurðsson og Hermann Stefánsson.

Fyrsta hátíðin fór fram í fyrra og heppnaðist afar vel. Aðsókn var ævintýralega góð og frábær stemning ríkti á ljóðakvöldunum tveimur. Vonir standa til að nýta þennan meðbyr langt fram eftir 21. öldinni og bjóða upp á frábær ljóðakvöld á meðan skipuleggjendur standa í báðar lappirnar.

Á Litlu ljóðahátíðunum er áheyrendum boðið upp á spennandi og heilsteypta dagskrá sem gefur glögga mynd af íslenskri ljóðlist ár hvert. Á hátíðinni er lagt upp með að bjóða í hvert sinn upp á fjölbreytt efni. Líkt og í fyrra verða tvö ljóðakvöld þar sem nokkur af fremstu ljóðskáldum samtímans lesa upp úr verkum sínum. Að auki verður boðið upp á fyrirlestra um ljóðlist laugardaginn 17. apríl.

Ljóðakvöld hátíðarinnar verða haldin í Populus Tremula í Listagilinu, en fyrirlestrarnir fara fram á menningarsetrinu á Möðruvöllum í Hörgárdal. Viðburðir hátíðarinnar verða öllum opnir án endurgjalds.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd