Litla prinsinum vel tekið í Kúlunni

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Litli prinsinn

Litli prinsinn kom fyrst út árið 1943 og fór þá strax sigurför um heiminn. Nú er bókin talin meðal sígildra verka og er gefin út aftur og aftur á fjölmörgum þjóðtungum. Þessi einstæða saga á erindi við alla, unga sem gamla. Þar fléttast saman draumur og veruleiki, einfaldleiki og dul, létt gaman og djúp alvara sem vekur stöðugt til umhugsunar.

Litli prinsinn er nú sýndur  í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í  leikgerð og leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Sýningin fær hvorki meira né minna en fimm stjörnur frá gagnrýnanda Fréttablaðsins. Hér má lesa óstytta umfjöllun Tímarits Máls og menningar um verkið.

Í umfjöllun Tímarits Máls og menningar kemur fram að Stefán Hallur hafi  tekið þá ákvörðun að nota þýðingu Þórarins Björnssonar skólameistara frá 1961 og vera ekkert að nútímavæða hana.

„Hér eru engin koppípeist, læk eða tíst. Eftir á að hyggja er þetta frábær lausn. Það verður svo fullkomlega eðlilegt að prins frá annarri stjörnu tali einmitt hálfrar aldar gamla akureyrsku og þéri ókunnugar persónur sem hann hittir.“

Höfundurinn, Antoine de Saint-Exupéry, fæddist í Lyon í Frakklandi árið 1900 og var kunnur flugmaður og rithöfundur. Flugið heillaði hann, þar sá hann möguleika til að færa saman fólk og þjóðir. Í huga hans var ekkert eins mikilvægt og vinátta og mannskilningur, eins og kemur fram í Litla prinsinum. Skömmu áður en Frakkland var leyst úr ánauð var flugvél Saint-Excupérys skotin niður á könnunarflugi og hann hvarf í djúp Miðjarðarhafsins árið eftir að sagan um litla prinsinn hóf sigurför sína.

Litmyndir við söguna gerði höfundurinn sjálfur.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd