„Loftið er grátt og mettað púðurreyk. Allir hafa verið skotnir nema ég. Ég er ekki einu sinni með marblett.“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Persson Giolito

Kviksyndi eftir Marin Persson Giolito sló í gegn í Svíþjóð í fyrra. Nú halda gagnrýnendur í Bretlandi og Bandaríkjunum varla vatni yfir þessari áhrifamiklu spennubók sem væntanleg er á íslensku á næstu dögum í þýðingu Eyrúnar Eddu Hjörleifsdóttur.

Við upphaf sögunnar hefur hin átján ára Maja Norberg setið í fangelsi í níu mánuði sökuð um skotárás í skólanum sínum þar sem kærastinn hennar, besti vinur og fjórir aðrir létust. Nú er komið að því að rétta yfir henni og draga sannleikann fram í dagsljósið. Hvernig fór sæta, ríka, klára og vinsæla stelpan að því að verða hataðasta ungmenni Svíþjóðar?

Kviksyndi er hárbeittur réttarfarstryllir sem veltir upp ágengum spurningum um sekt, ábyrgð, innflytjendamál, samfélagsspennu, ríkidæmi og unglingsárin.

Höfundur bókarinnar starfaði sem lögfræðingar árum saman og í Kviksyndi nýtir reynslu sína af dómskerfinu og erfiðum réttarhöldum við að skapa leiftrandi, spennuþrungið andrúmsloft.

Aðdáendur spennubóka, látið ykkur hlakka til!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd