Málverkið lofað!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ólafur Jóhann Ólafsson

Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hefur verið lofað í hástert af gagnrýnendum. Í dag fékk skáldverkið fimm stjörnur frá Páli Baldvini Baldvinssyni í Fréttatímanum sem segir meðal annars að Málverkið sé „stórbrotið skáldverk þar sem pakkað er saman miklum örlögum.” Páll Baldvin er fullviss um að bókin muni falla stórum hóp aðdáenda Ólafs vel í geð enda sé Ólafur Jóhann “flinkur að spinna þráð sem er fagurfræðilega fullnægjandi, hlaðinn spennu og rómans …”

Fleiri hafa dásamað skáldverkið og þar á meðal Kolbrún Bergþórsdóttir sem fullyrti í Kiljunni á dögunum að Málverkið væri besta bók Ólafs Jóhanns. Ennfremur gaf Anna Lilja Þórisdóttir hjá Morgunblaðinu bókinni fjórar stjörnur og segir um efnivið bókarinnar að „undir fáguðu og tandurhreinu yfirborði [kraumi] heit ást, afbrýði, hatur og hefnd.” Þórunn Hrefna, gagnrýnandi Fréttablaðsins, gefur bókinni fjórar stjörnur og kemst að eftirfarandi niðurstöðu í dómi sínum: „Eftirminnileg saga, svo vel unnin og fallega saman sett að það er hreinlega aðdáunarvert.“

Sannkölluð örlagasaga hér á ferð sem hægt er að sökkva sér í yfir jólin.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd