„Meistari glæpasögunnar er íslenskur!“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Arnaldur Indriðason

Sigurganga Arnaldar Indriðasonar í Frakklandi heldur áfram og er bók hans Svörtuloft nú í efsta sæti franska glæpasagnalistans og í öðru sæti á heildarlistanum. Glæpasagan Svörtuloft er því önnur mest selda bókin í gervöllu Frakklandi! Svörtuloft komu út hjá Éditions Métailié fyrir ári, í þýðingu Eric Boury og hjá vasabrotsforlaginu Points fyrir nokkrum dögum.

Skemmst er frá því að segja að Arnaldur trónir á toppi glæpasagnalistans en að auki eru þrjár aðrar bækur hans á listanum, Bettý, Furðustrandir og Harðskafi. Bókin er í öðru sæti heildarlistans sem teljast verður glæsilegur árangur. Points kynnir bókina með svohljóðandi orðum: Le maître du polar est islandais Le nouveau roman d’Indridason en poche  sem í íslenskri þýðingu útleggst: „Meistari glæpasögunnar er íslenskur – ný bók Arnaldar Indriðasonar, í vasabroti.“

Bækur Arnaldar njóta gríðarlegra vinsælda í Frakklandi og virðist ekkert lát á. Arnaldur heldur utan í vikunni og tekur þátt í alþjóðlegu bóka- og kvikmyndahátíðinni Étonnant voyageurs í Saint Malo en hún hefur verið haldin frá 1990. Hana sækja um 60.000 gestir og á dagskrá eru um 300 atburðir með þátttöku þekktra rithöfunda og kvikmyndaleikstjóra. (Sjá slóð: http://www.etonnants-voyageurs.com/ .)

Nýjasta bók Arnaldar, Reykjavíkurnætur, er nýkomin út í kilju hérlendis. Bókin var mest selda bók síðustu jólavertíðar og hefur þegar verið seld til Frakklands, auk Bretlands, Þýskalands, Hollands og Svíþjóðar.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd