Mikilvægt að ögra sjálfum sér

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

„Hluti af starfi manns sem höfundar er að takast á við viðfangsefni sem eru á einhvern hátt ögrandi og krefjast einhvers nýs af manni. Og í þessari sögu finnst mér ég vera að takast á við hluti sem ég átti eftir að takast á við. Ég hef til dæmis aldrei áður skrifað bók um sextán ára ungling og það var nýtt fyrir mér að fara þangað og reyna að muna hvernig það var, á hvaða orku maður gengur þegar maður er sextán ára og er að vakna og byrja að spyrja sig spurninga um hvort samfélagið sé nú akkúrat eins og það eigi að vera. Varðandi kanónuna get ég ekkert að því gert þótt einhverjar af bókunum mínum hafi gengið vel og njóti virðingar. Þykir auðvitað bara vænt um það en reyni á sama tíma að endurtaka mig ekki, ögra sjálfum mér og finna nýjar leiðir til að skrifa um eitthvað sem varpar fram nýjum spurningum, ögrar og er í ákveðinni uppreisn.“ Svo mælir rithöfundurinn Sjón í viðtali við Friðriku Benonýsdóttur í Fréttablaðinu um helgina.  Skáldsaga hans, Mánasteinn, kemur út á morgun.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd