
Tíunda sagan um hetjuna Harry Hole er væntanleg núna í janúar. Aðdáendur bóka Jo Nesbø hafa beðið með óþreyju eftir fleiri sögum um þennan magnaða mann. Löggan er frábærlega skrifuð spennusaga, og að sumra mati besta Hole-bókin af þeim öllum. Bókin er væntanleg í lok janúar í kilju og rafbók, í þýðingu Bjarna Gunnarssonar.
Í sögunni segir frá því þegar lögreglumaður er myrtur á hryllilegan hátt á vettvangi morðs sem hann hefur tekið þátt í að rannsaka. Nokkrum mánuðum síðar endurtekur sagan sig – og svo enn einu sinni. Einhver virðist vera í hefndarhug. Á sama tíma liggur maður í dái á sjúkrahúsi í Osló undir strangri lögregluvernd. Enginn veit hvort hann muni komast til meðvitundar en hann býr yfir hættulegri vitneskju og sumir vilja ekki að hann vakni. Rannsóknarlögreglan er ráðþrota og í hvern er þá best að hringja …





