Nýir stjórnendur hjá Forlaginu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Á fundi með starfsfólki Forlagsins í morgun kynnti stjórn félagsins breytingar sem hún hefur ákveðið að gera í kjölfar þess að framkvæmdastjóri félagsins, Egill Örn Jóhannsson, og fjármálastjóri, Þórhildur Garðarsdóttir, sögðu störfum sínum lausum fyrir mánuði síðan. Jafnframt þakkar stjórnin þeim fyrir sitt góða framlag allt frá stofnun Forlagsins.

Nýr framkvæmdastjóri félagsins hefur verið ráðin Sigþrúður Gunnarsdóttir. Hún er menntuð í íslensku og bókmenntum og hefur starfað hjá Forlaginu frá stofnun þess, og þar áður hjá Eddu og Máli og menningu. Hún hefur unnið náið með mörgum íslenskum höfundum og er önnur tveggja ritstjóra Tímarits Máls og menningar. Hún hefur einnig átt sæti í stjórn Forlagsins um nokkurra ára skeið. „Við fögnum því mjög að ein okkar öflugasta samstarfskona hefur fallist á að taka að sér þá auknu ábyrgð sem felst í starfi framkvæmdastjóra. Sigþrúður hefur sýnt það í störfum sínum að hún hefur brennandi áhuga á framgangi íslenskra bókmennta og við erum sannfærð um að starfið muni farast henni vel úr hendi,“ segir Halldór Guðmundsson, stjórnarformaður Forlagsins, af þessu tilefni. Sigþrúður tekur til starfa þann 8. mars.

Nýr markaðsstjóri hefur verið ráðinn Jón Heiðar Gunnarsson. Jón Heiðar er menntaður í blaðamennsku og heimspeki en hefur einnig lært stafræna markaðssetningu og viðskipti á netinu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem yfirmaður hjá auglýsingastofunni Sahara, þar sem Forlagið var meðal viðskiptavina hans, en þar áður hjá Birtingarhúsinu sem sérfræðingur. Hann hefur unnið að markaðsmálum fyrir fjöldamög fyrirtæki síðastliðinn áratug og má þar nefna vörumerki á borð við Byko, Nova, Elko og Krónuna. Hann hefur einnig starfað við fjölmiðla og sem atvinnumaður í handbolta, svo eitthvað sé nefnt. Stjórn félagsins telur að fjölþætt reynsla hans og sér í lagi kunnátta á sviði markaðsmála muni henta Forlaginu afar vel. Í upphafi árs hafði markaðsstjóri Forlagsins, Guðrún Norðfjörð, óskað eftir að láta af störfum, og er henni líka þakkað fyrir sitt góða framlag á síðastliðnum árum.

Þá hefur Stella Soffía Jóhannesdóttir verið ráðin til starfa hjá Forlaginu, en hún starfaði þar í sex ár áður en hún tók við starfi hjá Storytel á Íslandi. Stella er menntuð í bókmenntum og ritstjórn og hefur jafnframt verið framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík frá 2009 auk þess að taka þátt í verkefninu Sögueyjan, sem kynnti Ísland sem heiðursgest á bókasýningunni í Frankfurt. Stella mun ganga til liðs við þær sem fyrir eru á öflugri réttindastofu Forlagsins til að móta allsherjar umboðsskrifstofu fyrir íslenskar bókmenntir, sem erlendis verður kynnt undir heitinu Reykjavík Literary Agency. Stjórn Forlagins telur mikil tækifæri fólgin í réttindasölu, bæði á sviði bóka, kvikmynda og stafrænnar útgáfu, og er sannfærð um að reynsla Stellu og tengslanet komi þar að góðum notum. Stella hefur störf þann 1. maí.

Útgefandi Forlagsins er sem fyrr Hólmfríður Matthíasdóttir. Staða fjármálastjóra hefur verið auglýst og hefur Þórhildur Garðarsdóttir fallist á að gegna starfinu þar til nýr stjórnandi hefur verið ráðinn.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd