Múrinn eftir Sif Sigmarsdóttur hefur hlotið frábæra dóma undanfarna daga, fjórar stjörnur í bæði Fréttablaðinu og DV. Múrinn er fyrsta bókin í fantasíuþríleiknum Freyju sögu, myrkum framtíðartrylli sem gerist í innilokaðri borg sem er reist á einhvers konar Reykjavík.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir segir í Fréttablaðinu að sagan sé æsispennandi: „Höfundi tekst að búa til sannfærandi heim þar sem allt gengur upp og greinilegt er að forsagan, baksagan um tilurð hinnar ímynduðu distópíu, er úthugsuð líka. Lesandinn sekkur þannig inn í heim fantasíunnar í öruggum höndum höfundarins.“
Kristjana Guðbrandsdóttir tekur í sama streng í DV og bendir á að „fullorðnir jafnt sem unglingar [ættu] að hafa gaman af lestri bókarinnar.“ Hún bendir á að bókin kallist að ýmsu leyti á við Hungurleikana og segir: „Bækurnar eiga það sameiginlegt að vera pólitískar. Hvetja til gagnrýnnar hugsunar um vald og eðli ofbeldis. Um réttlæti og mannréttindi og grunngerð samfélags. Allt þarft lestrarefni fyrir ungt fólk í síbreytilegum heimi.“ Að lokum kallar hún eftir því að einnig þessi mynd verði færð upp á hvíta tjaldið: „Kannski við Íslendingar getum átt okkar eigin Hungurleika, kaldari, drungalegri og grimmilegri. Já, og blóðugri.“





