Ólympíuleikar í ljóðlist

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Gerdur Kristny

Það ætti ekki að hafa farið framhjá mörgum að í sumar verða Ólympíuleikarnir haldnir í London. Á sama tíma verða haldnir Ólympíuleikar í ljóðlist og Gerður Kristný verður fulltrúi Íslands þessari stærstu ljóðahátíð Bretlands í sumar.  Á hátíðinni verður einn fulltrúi, eitt skáld, frá hverju Ólympíulandi og þar á meðal tvö nóbelskáld og fleiri kanónur.

Gerður Kristný hefur vakið mikla athygli með ljóðabókum sínum, hefur hlotið margs konar viðurkenningar, fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin og var nú síðast tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir ljóðabók sína Blóðhófnir. Hún er því aldeilis verðugur fulltrúi Íslands á Ólympíuleikum í ljóðlist og fær styrk til ferðarinnar frá Valitor eins og aðrir Ólympíufarar frá Íslandi í ár.

Kastljós spjallaði við Gerði Kristnýju um ólympíska lágmarkið og ljóðlistina.



Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd