Sigrún sýnir í safni ASÍ

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Sýning á verkum Sigrúnar Eldjárn verður opnuð í Listasafni ASÍ nk. laugardag kl. 15. Sýningin ber yfirskriftina TEIKNIVÍSINDI – SJÖ NÍU ÞRETTÁN og er hún ákveðinn óður til blýantsins.

Stórum og smáum teikningum er teflt saman í salnum. Þær eru frásagnakenndar en þó frjálsar og óháðar, gerðar á sínum eigin forsendum. Myndirnar raðast saman og mynda myndasögu sem er þó án söguþráðar. Þær  kallast síðan á við barnabókaheiminn í Arinstofunni. Hann tengist svo  með sínu móti innsetningu í Gryfjunni  gerðri úr hekluðum fígúrum og blýöntum sem mátuð eru inn í gullinsniðsform.

Sigrún hefur gegnum tíðina haldið fjölmargar sýningar og tekið þátt í samsýningum. Fyrsta barnabókin hennar kom út 1980. Þær skipta nú tugum og njóta mikilla vinsælda meðal barna á ýmsum aldri. Fjör og frískleiki einkennir bækur Sigrúnar og í þeim vega myndir og texti álíka þungt.

Það má segja að Sigrún Eldjárn hafi byrjað myndlistarferil sinn einmitt í Ásmundarsal við Freyjugötu því þar fór hún árið 1967 á sitt fyrsta myndlistarnámskeið þrettán ára gömul. Þar var þá Myndlistarskólinn í Reykjavík til húsa og Ragnar Kjartansson myndhöggvari kenndi. Hún sótti síðan mörg námskeið eftir þetta eða þar til hún hóf fullt nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún útskrifaðist þaðan árið 1977 og var svo gestanemandi í Listaakademíunum í Varsjá og Kraká í Póllandi 1978.

Allar götur síðan hefur Sigrún stundað sína myndlist en einnig sinnt ritstörfum. Árið 1980 gaf hún út fyrstu barnabókina, Allt í plati, og er handrit þeirrrar bókar og frumteikningar til sýnis auk fleiri myndskreytinga – til dæmis úr nýjustu bókinni sem heitir – Strokubörnin á Skuggaskeri – og kemur út hjá Máli og menningu nú í haust.

Með þessari yfirgripsmiklu sýningu er leitast við að veita innsýn í margbreytileg verk Sigrúnar og tengja saman ýmsa þætti sem hún hefur fengist við gegnum tíðina. Ætlunin er að allir þessir þættir fléttist saman í sannfærandi heild og endurspegli skemmtilegan listaferil sem ekki sér fyrir endann á.

Titill sýningarinnar er TEIKNIVÍSINDI – SJÖ NÍU ÞRETTÁN og kann að vekja upp spurningar. Það er vitaskuld ekki til neitt sem kallast  teiknivísindi. Álíka gáfulegt er að tala um slík vísindi og að banka í tré og segja: „sjö níu þrettán“  til að koma í veg fyrir að eitthvað óheppilegt hendi mann. Þrátt fyrir það hefur Sigrún valið báðar þessar nafngiftir á sýninguna. Sjö níu þrettán er dagsetning opnunarinnar og frá og með þeim degi eru teiknivísindi orðin til.

Allir eru hjartanlega velkomnir á opnunina sem verður kl. 15 þann 7. september eða að skoða síðar en sýningin mun standa til og með 29. sept. Hún er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13 – 17


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd