Sigurður Pálsson er látinn eftir erfið veikindi

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
SP

Sigurður Pálsson fæddist 30. júlí 1948 á Skinnastað í N-Þingeyjarsýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði frönskunám í Toulouse og París og nam leikhúsfræði og bókmenntir í Sorbonne. Hann hefur einnig lokið námi í kvikmyndasleikstjórn.

Sigurður hefur fengist við ýmis störf í gegnum tíðina. Hann hefur verið fréttaritari, leiðsögumaður, kennari og unnið við sjónvarp og kvikmyndir. Sigurður hefur þó einkum fengist við ritstörf og þýðingar um langt skeið. Hann var forseti Alliance Française um skeið og formaður Rithöfundasambands Íslands.

Sigurður var einn af Listaskáldunum vondu 1976. Fjölmargar ljóðabækur hafa birst á prenti eftir Sigurð, sú fyrsta kom út 1975 undir heitinu Ljóð vega salt. Ljóðabókin Ljóð námu völd var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1993, Sigurður hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók árið 2007 og hafði þá áður verið tilnefndur fyrir ljóðabækurnar Ljóðlínuskip (1995) og Ljóðtímaleit (2001). Sigurður hefur einnig ritað skáldsögur og fengist við leikritasmíð, skrifað sjónvarps- og útvarpshandrit og óperutexta. Ljóðabækur hans hafa verið þýddar á fjölmörg erlend tungumál, m.a. búlgörsku og kínversku. Árið 1994 kom út tvítyngd útgáfa ljóða hans hjá Editions de la Différence í París í þýðingu Régis Boyer, deildarforseta Skandínavísku deildar Sorbonne-háskóla. Stórt úrval ljóða Sigurðar í enskri þýðingu árið 2014 undir titlinum Inside Voices, Outside Light.

Sigurður var valinn borgarlistamaður Reykjavíkurborgar á tímabilinu 1987-1990, var veittur riddarakross Orðu lista og bókmennta (Chevalier de l’Ordre des Arts et des Lettres) af menningarmálaráðherra Frakklands árið 1990, og Frakklandsforseti sæmdi hann riddarakrossi Frönsku heiðursorðunnar (Chevalier l’Ordre National du Mérite) árið 2007. Hann hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2016.

Á nýársdag 2017 veitti forseti Íslands Sigurði Fálkaorðuna fyrir framlag til íslenskra bókmennta og menningar. Vorið 2017 veittu Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands Sigurði Maístjörnuna fyrir ljóðabókina Ljóð muna rödd en hún hefur nú verið þýdd á dönsku og norsku og útgáfa í þeim löndum væntanleg. Úrval ljóða hans, Mit hus, kom út hjá danska bókaforlaginu Vandkunsten í vor og hefur það að geyma ljóð úr fimmtán bókum Sigurðar sem komu út á árunum 1975 til 2012 í þýðingu Erik Skyum Nielsen. Í byrjun árs 2018 er væntanleg síðasta þýðing Sigurðar, Dora Bruder eftir Nóbelsverðlaunahöfundinn Patrick Modiano.

Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Kristín Jóhannesdóttir, kvikmyndaleikstjóri, en saman áttu þau soninn Jóhannes Pál.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd