Sjón skilar handriti sínu í framtíðarbókasafn Oslóarborgar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sjón og framtíðarbókasafnið

Föstudagsmorguninn 2. júní skilaði skáldið Sjón framlagi sínu til Framtíðarbókasafnsins í Osló. Athöfnin fór fram í Nordmarka, skógi norður af borginni, þar sem saman kom hópur bókmenntafólks og listunnenda víða úr heiminum. Við handritinu tók skoski listamaðurinn Katie Paterson sem afhenti það svo Marianne Borgen, borgarstjóra Oslóar, til varðveislu. Seinna saman dag var fjölsótt dagskrá um Sjón og verk hans í Deichmanske-borgarbókasafninu. Við bæði tækifærin fluttu Ásgerður Júníusdóttir, mezzó-sópran, og Marion Herrera, hörpuleikari, íslenska tónlist.

Framtíðarbókasafnið er hugverk Katie Paterson og felur í sér að á hundrað árum frá árinu 2014 verður á hverju ári nýr rithöfundur beðinn um að skrifa verk og leggja til safnsins. Sjón er þriðji höfundurinn sem afhendir safninu verk eftir sig en fyrst voru Margaret Atwood og David Mitchell. Verða verkin geymd ólesin í sérstöku herbergi í nýrri byggingu borgarbókasafns Oslóar en í Nordmarkaskógi hefur verið plantað eittþúsund trjám sem notuð verða í pappír framtíðarbókanna þegar þær koma fyrir augu lesenda árið 2114. Þangað til verður fólk að gera sér verkin í hugarlund út frá titlum þeirra en athöfninni í skóginum lauk einmitt á því að Sjón opinberaði titil verks síns. Og hann er:

VII

Þegar enni mitt strýkst við kjólfald engla

eða 

Nokkuð um fallturninn, rússíbannann, snúningsbollana

og önnur tilbeiðslutæki frá tímum síð-iðnvæðingarinnar

Sjón fór frá Noregi til Þýskalands þar sem hann dvelur í sumar sem gestur Loftslagsrannsóknarstofnunarinnar í Potsdam. Þar mun hann hafa aðstöðu í litlum stjörnuskoðunarturni og vinna að bókmenntaverki sem tekst á við þá miklu ógn sem mannkyni stafar af hlýnun jarðar og afleiðingum hennar.

Verk Sjóns halda áfram að koma út erlendis. Útgáfuréttur CoDex 1962 hefur meðal annars verið seldur til Bandaríkjanna, Þýskalands og Bretlands, Skugga-Baldur kemur brátt út á 35. tungumálinu og nú í lok maí var ljóðabókin gráspörvar og ígulker gefin út í franskri þýðingu Severine Daucourt hjá forlaginu Editions Lanskine í París. Það síðarnefnda sætir nokkrum tíðindum því afar sjaldgæft er að heilar ljóðabækur íslenskra skálda séu gefnar út á öðrum málum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd