
Rússneska forlagið Meshcheryakov Publishing House, sem á dögunum skrifuðu undir samning við barnabókahöfundinn Ævar Þór Benediktsson, hefur nú tryggt sér réttinn á þremur bókum um litla skrímslið og stóra skrímslið, bækurnar Nei! sagði litla skrímslið, Stór skrímsli gráta ekki og Skrímsli í myrkrinu munu því brátt líta dagsins ljós á rússnesku.
Skrímslabækurnar eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal hafa glatt börn um allan heim á undanförnum árum og hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar, meðal annars tilnefningu til Barnabókaverðlauna Norðurlandaráðs, útnefningu á heiðurslista Ibby fyrir myndlýsingar, tilnefningu til Le prix des Incorruptibles 2012 – Bókaverðlaun barna og unglinga í Frakklandi, Bókaverðlaun bóksala fyrir bestu barnabókina, Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin og svo mætti lengi telja. Bækurnar hafa komið út víða um heim, meðal annars í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Svíþjóð, Litháen, Kína, og á Spáni á katalónsku, basknesku og galisísku.
Íslensk börn geta heldur betur glaðst í þessari jólavertíð því splunkuný bók um uppáhalds skrímslin okkar allra er nýkomin út, Skrímsli í vanda.





