
Ævar Þór Benediktsson, best þekktur sem Ævar vísindamaður, er líklega afkastamesti höfundur landsins. Nú er komin út ný bók í Þín eigin-flokknum, sú þriðja á þremur árum, en auk þeirra hefur hans sent frá sér bækur um bernskubrek Ævars vísindamanns (Risaeðlur í Reykjavík og Vélmennaárásina) og eina ferðabók (Umhverfis Íslands í 30 tilraunum), allt á síðustu þremur árum!
Nýja bókin heitir Þín eigin hrollvekja en hún sver sig í ætt við hinar bækurnar í Þín eigin-flokknum að því leiti að hún er virkar eins og tölvuleikur. Lesandinn ræður hvað gerist. Í bókinni eru yfir fjörtíu ólíkir endar og sögulok spanna allt frá eilífri hamingju til skyndilegs bana. Sögusviðið er dimmt og drungalegt kvöld, stútfullt af skrímslum og óvættum. Þú getur rekist á vampírur og varúlfa, uppvakninga og illa anda, brjálaðar brúður og tryllta trúða – allt eftir því hvað þú velur. Sem sagt, hryllilega góð skemmtun fyrir alla krakka.
Ef þú þorir geturðu lesið bókina og farið svo á heimasíðuna www.harmaadhefna.is. Farðu samt varlega …





