Smá kitl

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Erótíkin á upp á pallborðið nú um stundir. Við birtum hér brot úr væntanlegri bók, L.E.Y.N.D, sem án efa mun kveikja í aðdáendum náttborðs- og blúndubókmennta:

„Þessi maður! Hvað get ég sagt? Matilda hafði rétt
fyrir sér. Hann var svo djöfull sexí … hann gekk
hægt til mín eins og köttur og ég hörfaði þangað til
ég rak hnésbæturnar í rúmið. Og þá sendi hann mig
ofan í það með því að ýta blíðlega við mér, hann
lyfti pilsinu mínu og aðskildi fótleggina. Ég dró
kodda yfir andlitið þegar hann sagði einu orðin sem
hann sagði þann daginn: Þú ert svo helvíti falleg.
Og svo færði hann mér alsælu sem ég get í rauninni
ekki lýst hérna en ég ætla samt að reyna …“

L.E.Y.N.D eftir L. Marie Adeline hefur vakið heimsathygli.  Sagan fjallar um þjónustustúlkuna Cassie sem dag einn rekst á dularfulla minnisbók. Það litla sem Cassie les í bókinni kitlar og hneykslar og kemur henni að lokum í samband við L.E.Y.N.D., leynisamtök í New Orleans sem hjálpa konum að raungera erótískar fantasíur sínar og verða kynferðislega lifandi. Fyrr en varir er Cassie komin af stað í tíu skrefa ferli samtakanna þar sem hver fantasían rekur aðra og hver folinn af öðrum fullnægir öllum hennar þörfum – jafnvel þeim sem hún hafði ekki hugmynd um að hún byggi yfir…

L.E.Y.N.D er væntanleg í bókaverslanir eftir helgina



Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd