Sögusamkoma í Hannesarholti

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Í tilefni af útkomu bókanna Ástarsaga Íslendinga að fornu eftir Gunnar Karlsson og Leiftur á horfinni öld eftir Gísla Sigurðsson efnir Forlagið til sögusamkomu í Hannesarholti, sunnudaginn 17. nóvember kl. 15. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.

Bækur þessar varpa báðar nýju og óvæntu ljósi á sagnaarf okkar Íslendinga. Höfundar munu greina stuttlega frá verkum sínum og rannsóknum en Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur, mun síðan stýra óformlegum umræðum.

Bók Gunnars Karlssonar beinir sjónum lesenda að sögu tilfinninganna og fjallar á lifandi og aðgengilegan hátt um ástir Íslendinga á tímabilinu 870–1300. Þar er til að mynda fjallað um rétt landsmanna til að elska, leiðir í makavali, skilnaði og frillulíf. Gunnar leitar víða fanga, í forn kvæði, lögbækur, Íslendingasögur, Sturlungu, biskupasögur og fleiri rit og kemst að því að ástin réð furðumiklu í lífi forfeðra okkar.

Í Leiftri á horfinni öld rýnir Gísli Sigurðsson í hvað merkilegt sé við íslenskar fornbókmenntir og bendir á að þær séu frumbyggjabókmenntir, skráðar af frumbyggjunum sjálfum um landnám fólks í nýju landi – eftir leifturhugmynd Snorra Sturlusonar um hvernig rittæknin gæti miðlað hinum hefðbundnu munnlegu fræðum. Þær fangi lífs- og heimssýn fólks sem túlkaði veröldina með goðsögum og náði tökum á umhverfi sínu með því að þekja það minningum og örnefnum – innblásið af sagnaranda gelískra þjóða á Bretlandseyjum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd