Spennandi útgáfuboð

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
mmmsveitin

Í vikunni halda höfundar Forlagsins tvö útgáfuboð en þetta eru líklega þau síðustu sem haldin verða þetta árið.

Annars er það Eggert Þór Bernharðsson sem býður í útgáfuboð í tilefni af nýútkominni bók sinni Sveitin í sálinni, sannkölluðum gimsteini í bókarformi. Í bókinni er fjallað um sveitalífið í Reykjavík, horfinn tíma sem þó er svo nálægur. Verkið er ákaflega myndríkt en þar er rakið í glöggum texta og rúmlega 550 forvitnilegum ljósmyndum hvernig ásýnd Reykjavíkur tók stakkaskiptum á 20. öld – þar sem fléttuðust saman fornir hættir og ný viðhorf. Við bjóðum ykkur að fagna útgáfunni með okkur í Eymundsson Austurstræti fimmtudaginn 4. desember kl. 17. Léttar veitingar verða í boði og að sjálfsögðu allir velkomnir.

Hér má finna viðburðinn á Facebook.

Hins vegar er það útgáfuboð einnar áhugaverðustu og jafnframt girnilegustu matreiðslubókar ársins en það er MMM – Matreiðslubók Mörtu Maríu. Á föstudaginn kemur, kl. 17.00 ætlum við að fagna útkomu bókarinnar í verslun Forlagsins á Fiskislóð. Boðið verður upp á veitingar út bókinni og svo enginn ofþorni nú verða glæsilegar veitingar frá Vífilfelli í formi léttvíns og bjórs. Heppnir partígestir geta unnið bókina – ekki missa af þessu!

Hér má finna viðburðinn á Facebook.

Komið fagnandi!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd