Stjörnur í blóðinu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jo Nesbø

Blóð í snjónum, nýjasta afurð hins sívinsæla Jo Nesbø, sem kom út í íslenskri þýðingu í byrjun sumar hefur sannarlega slegið í gegn, hlotið hvern frábæra dóminn á fætur öðrum og óhætt að segja að gagnrýnendur keppist um að lofa verkið.

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifaði dóm í DV, gaf bókinni nánast full hús stiga (fjóra og hálfa stjörnu) og sagði meðal annars:

„Blóð í snjónum er stutt, snörp og innihaldsrík með hrikalegu uppgjöri og áhrifamiklum og merkilega ljóðrænum lokakafla … spennandi frá upphafi til enda … Nesbø er meistari á sínu sviði … frábærlega vel heppnuð glæpasaga sem grípur lesandann frá fyrstu blaðsíðu.“

Gagnrýnendur Fréttablaðsins og Morgunblaðsins höfðu svipaða sögu að segja og gáfu báðir fjórar stjörnur. Kristjana Guðbrandsdóttir hjá Fréttablaðinu segir að Blóð í snjónum sé „ein eftirminnilegasta skáldsaga Jo Nesbø“ og Steinþór Guðbjartsson hjá Morgunblaðinu segir hana enn eina rósina í hnappagat höfundar.

Friðrika Benónýsdóttir er í skýjunum með bókina og skrifar í Stundina: „Það er hætt við að marga aðdáenda [Jo Nesbø] reki í rogastans yfir þessari knöppu og frábærlega skrifuðu sögu af leigumorðingjanum Ólafi og raunum hans … Nesbø fer hér bókstaflega á kostum í stíl og byggingu.“

Og nú síðast skrifaði Steinunn Inga Óttarsdóttir dóm um bókina inn á vef Kvennablaðsins þar sem hún segir bókina „þrælspennandi og lymskulega vel samsetta“.

Ljóst er að afar fáar bækur hafa fengið aðrar eins viðtökur það sem af er þessu ári og gagnrýnendur og lesendur sammála um að hér sé á ferðinni bók sem glæpasagnaaðdáendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.

Og það besta er að von er á framhaldinu strax í janúar!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd