Styrkur bókaþjóðarinnar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Fjögur íslensk bókaforlög, í samvinnu við bókaverslanir Eymundsson, hafa afhent Slysavarnafélaginu Landsbjörg 1.500.000.- kr en það er afrakstur söfnunar þeirra “Bókaþjóðin styður fólkið á Haiti”. Mun styrkurinn verða nýttur til að endurnýja hluta búnaðar Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar sem skilinn var eftir á Haiti eftir að störfum hennar lauk þar. Nú er unnið hörðum höndum við að koma sveitinni aftur í útkallshæft form.

Peningunum var safnað með sölu sjö nýrra stórvirkja á sviði útgáfu og voru þau seld í bókaverslunum Eymundsson um allt land. Útgáfufélögin eru Forlagið, Bjartur & Veröld, Opna og Uppheimar auk þess sem Eymundsson bætti 10% af allri sölu barnabóka þá daga sem átakið stóð yfir við söfnunarupphæðina.

Stórvirkin sem um ræðir voru Sagan og Ísland í aldanna rás 1700–1799 frá Forlaginu, Ásgerður Búadóttir – Veftir og Elías B. Halldórsson frá Uppheimum, Myndlist í þrjátíu þúsund ár og Jöklar á Íslandi frá Opnu og Svavar Guðnason frá Bjarti & Veröld en tvö síðast nefndu verkin eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem veitt verða nú í febrúar.

Félag íslenskra bókaútgefenda hyggst standa fyrir fleiri verkefnum af þessu tagi á næstu vikum til stuðnings björgunarstarfi á Haítí. Félagið hefur enn fremur vakið athygli Evrópusamtaka bókaútgefenda á þessu framtaki og hvatt systurfélög sín til að leggja þessu brýna málefni lið.

Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa bókaforlaganna, Eymundsson og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og var hún tekin þegar styrkurinn var afhentur félaginu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd