Styrkur til skólabókasafna

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Félag íslenskra bókaútgefenda úthlutaði um helgina fyrstu styrkjunum úr nýstofnuðum Skólasafnasjóði til bókasafna grunnskólanna. Markmið sjóðsins er að vekja athygli á þeim gríðarlega niðurskurði sem orðið hefur á framlögum til bókasafna grunnskólanna um allt land. Nöfn tíu skóla voru dregin út í beinni útsendingu hjá Sirrý á Rás tvö og hljóta skólabókasöfn hvers skóla um sig, 30 þúsund króna styrk til bókakaupa.

Í Viku bókarinnar dreifa bókaútgefendur Ávísun á lestur inn á öll heimili landsins en með hana í höndum er hægt að fá 1.000 kr. afslátt af bókakaupum. Af hverri ávísun sem nýtt er til bókakaupa renna 100 krónur í Skólasafnasjóð og er hægt að mæla með sínum skóla með því að skrifa nafn hans á ávísunina. Með því að úthluta styrkjum úr sjóðnum vill Félag íslenskra bókaútgefenda minna á mikilvægi þess starfs sem unnið er á skólabókasöfnum um allt land.

„Skólabókasöfnin eru hornsteinn lestrarhvatningar barna á Íslandi,“ segir Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. „Þegar tekin er ákvörðun um að stöðva fjárveitingar til þeirra er beinlínis verið að hvetja til hnignunar bókmenningarinnar, sem er óumdeilt einn mikilvægasti þátturinn í sjálfsmynd okkar sem þjóðar – við erum bókaþjóð. Lestrarhæfni er grundvöllur námsárangurs og við höfum alls ekki náð þeim árangri sem við viljum í alþjóðlegum námsmatskönnunum, líkt og PISA. Ég trúi því ekki að nokkur vilji þjóðfélag sem elur upp ólæs börn.“

Skólarnir sem hljóta styrk að þessu sinni eru tíu talsins:

Brekkubæjarskóli Akranesi, Brekkuskóli Akureyri, Grunnskólinn Borgarnesi, Lundarskóli Akureyri, Lækjarskóli Hafnarfirði, Melaskóli Reykjavík, Myllubakkaskóli Reykjanesbæ, Barnaskóli Norðfjarðar, Grunnskóli Bolungarvíkur og Öskjuhlíðarskóli Reykjavík.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd