Svartur á leik í kilju og í bíó

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Stefán Máni

Nýlega var skáldsagan Svartur á leik eftir Stefán Mána endurútgefin í kilju. Bókin hefur verið ófáanleg í þónokkurn tíma og þar sem kvikmynd byggð á bókinni verður frumsýnd 1. mars þótti vel við hæfi að gefa aðdáendum Stefáns Mána tækifæri til að lesa bókina  áður en skundað er í bíóhúsin.

Svartur á leik kom fyrst út árið 2004 og er óhætt að segja að bókin hafi komið Stefáni Mána á kortið sem krimmahöfundi. Bókin fékk gífurlega góða dóma og var talað um að hún markaði tímamót í íslenskri skáldsagnaritun vegna þeirrar raunsæju myndar sem gefin var af íslenskum undirheimum. Með mögnuðum spennusögum sínum hefur Stefán Máni öðlast stóran aðdáendahóp og hefur skáldsögum hans verið líkt við handrit Tarantinos, “hæfilega blóðug og hæfilega fyndin. En umfram allt töff.” (Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is)  Það verður því spennandi að sjá hvernig spennan færist yfir á hvíta tjaldið þann 1. mars.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd