Svimandi lesning um mennsku og ómennsku

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Þrír ungir menn. Þrjár ungar konur. Þrír ólíkir heimar: Reykjavík, frönsku Alparnir og yfirgefinn borpallur í eyðimörk. Alls staðar ríkir örvænting, ærandi þögn og djúp einsemd sem leiðir til furðulegra atburða og óhæfuverka.

Í þremur grípandi sögum kannar rithöfundurinn Steinar Bragi mörk mennsku og ómennsku og samband veruleika og óra af sama næmi og í skáldsögunni Konum sem hlaut fádæma góðar viðtökur, þar á meðal þrjá fimm stjörnu dóma í dagblöðum landsins. Himinninn yfir Þingvöllum er sjötta skáldsaga Steinars Braga en margir hafa beðið hennar með eftirvæntingu.

Útgáfurétturinn á skáldsögunni Konur hefur nýverið verið seldur til Svíþjóðar og Þýskalands en bókin er þegar komin út í Frakklandi.

Um Himinninn yfir Þingvöllum:

„Að hætti hinna gömlu meistara furðusögunnar
fylgir Steinar Bragi lesendum sínum um myrkustu

slóðir tilverunnar, jafnt þær sem liggja utan manneskjunnar
sem innan hennar. Þær götur þekkir hann eins og lófana á sér,
þar er hann frábær leiðsögumaður …“
Sjón

„Það er eitthvað óhugnanlega ferskt við þessar sögur.
Ófyrirsjáanleg og svimandi lesning um samskipti og sálarlíf
… Hættið að lesa blogg og lesi

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd