Fyrir fáeinum dögum voru rökræður Óttars Guðmundssonar og Guðna Ágústssonar sýndar í Kastljósi. Rökræðurnar snérust um sögupersónur Njálu og þær geðrænu raskanir sem Óttar Guðmundsson greinir þær með í nýrri bók sinni Hetjur og hugarvíl.
Rökræður Óttars og Guðna eru bráðskemmtilegar, þrætað er um meinta samkynhneigð sögupersóna, pólitísk átök, sigurvegara og tapara, hetjuímyndir og rangtúlkanir. Að lokum var m.a.s. Guðni sjálfur greindur af geðlækninum.
Hetjur og hugarvíl hefur fengið prýðisdóma og er hin skemmtilegasta lesning. Bókin hefur nú verið endurprentuð og því greinilegt að fólk hefur gaman af greiningum Óttars – hvort sem það er sammála þeim eða ekki.





