Þýðandi íslenskra bókmennta í Þýskalandi verðlaunaður fyrir framúrskarandi þýðingar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Kristof Magnusson

Hinn íslenskættaði rithöfundur og þýðandi, Kristof Magnusson, hlaut á dögunum hin virtu þýðingarverðlaun Rowohlt-stofnunarinnar fyrir þýðingar sínar á íslenskum bókmenntum. Samkeppnin um verðlaunin er hörð, verðlaunin sem um ræðir nema 10.000 evrum og geta fallið í skaut þýðenda sem þýða úr öllum öðrum tungumálum en ensku. Hlutfall þýddra bókmennta á þýskum markaði er með því hæsta sem gerist í heiminum og því felst í þessu mikil viðurkenning fyrir Kristof.

Kristof Magnusson hefur þýtt fjölda íslenskra rithöfunda á þýsku og kynnt íslenskar bókmenntir í hinum þýskulmælandi heimi. Í umsögn dómnefndar var sérstaklega tekið til þess hve fjölbreytt þau verk eru sem Kristof hefur fært í þýskan búning, en af þeim má nefna Grettissögu og Íslenskan aðal eftir Þórberg Þórðarsson og verk nútímahöfunda eins og Einars Kárasonar, Hallgríms Helgasonar, Sigurbjargar Þrastardóttur og Auðar Jónsdóttur.

Stjarna þessara höfunda rís hátt í Þýskalandi þessa dagana, þökk sé ekki síst þeirra góða þýðanda. Auður Jónsdóttir verður í sérstakri Íslandsdagskrá vegna opnunar á nýju óperuhúsi í Hamborg, Elbfílharmóníunnar. Þar munu hún og Halldór Guðmundsson ræða saman um íslenskar bókmenntir. Ljóst er að áhugi á efninu er mikill því löngu er uppselt á viðburðinn.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd