Tímakistan tilnefnd til verðlauna!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Andri Snær

Í hádeginu í dag voru tilnefningar til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs kynntar í Norræna húsinu. Tímakista Andra Snæs, sem Forlagið gaf út fyrir jólin, var önnur tveggja sem tilnefnd var fyrir Íslands hönd en hina tilnefninguna hlaut Lani Yamamoto fyrir Stínu stórusæng. Við óskum þeim innilega til hamingju!

Í umsögn sinni um Tímakistuna sagði íslenska dómnefndin:

Tímakistan fjallar um kunnuglega en þó framandi framtíð þegar mannkynið bíður betri tíma í svörtum kössum sem eru þeirrar náttúru að á meðan fólk er ofan í þeim stendur tíminn í stað. En ástand heimsins fer hríðversnandi á meðan, uns nokkur börn fara af stað og heyra hjá gamalli konu ævintýri um konung sem vildi sigrast á tímanum og eignaðist fyrstu tímakistuna til að vernda dóttur sína fyrir tímanum. Allt fer á versta veg hjá þessum konungi og eins þegar fólkið í samtíma sögunnar ákveður að fela sig í svörtum kassa og bíða þess að aðrir bjargi heiminum.

Í Tímakistunni fléttast saman nútíð, framtíð og fortíð að ógleymdum ævintýraheimi sem allir kannast við en enginn hefur búið í. Það er í þessari mögnuðu fléttu staðreynda, sannleika, galdra og furðu sem Andri Snær Magnason spyr áleitinna spurninga um lifnaðarhætti og gildi hins vestræna nútímasamfélags og ábyrgð hvers einstaklings á ástandi heimsins. Í sögunni er glímt við tímahugtakið og snúið upp á gömul ævintýraminni af ástríðufullri hugmyndaauðgi. Andri Snær er einhver atkvæðamesti rithöfundur Íslendinga seinustu ár, hvass samfélagsrýnir sem iðulega fléttar saman skýrum boðskap og húmor. Hann hefur oft sagt ráðamönnum og stórfyrirtækjum til syndanna í verkum sínum og er Tímakistan þar engin undantekning.

Í íslensku dómnefndinni sátu Ármann Jakobsson, Helga Birgisdóttir, Gísli Skúlason.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd