
Fyrr á árinu kom bók Jóns Gnarrs, Útlaginn, út hjá bandaríska forlaginu Deep Vellum. Útgáfan er sérstök að því leyti að Deep Vellum er rekið sem góðgerðarfélag í þeim tilgangi að tengja saman menningarheima og færa verk heimsklassa höfunda yfir á enska tungu og hlúa að þeirri sköpun sem á sér stað í þýðingu.
Skemmst er frá því að segja að bókin hefur hlotið afbragðs dóma, t.d. gaf bókmenntagagnrýnandinn Agnes Mack bókinni 9 af 10 mögulegum og sagði meðal annars: „Einstök rödd sem deilir sögu sem við heyrum því miður of oft.“ Í Europe Now birtist greinargóður dómur þar sem segir m.a. að „átakanleg hreinskilni höfundar dragi lesandann inn í tilfinningalegan hvirfilbyl unglingsins meðan hann berst við „hið eðlilega“; einmanaleikann, eigin takmarkanir og endalausa möguleika lífsins … Útlaginn er sem leiðarljós, sönnun eins manns á því að við erum alltaf og á sama tíma aldrei ein.“
Vefritið Men‘s Journal gerði svo enn betur og valdi bókina sem eina af 40 eftirtektarverðustu bókum ársins.
Sjálfsævisöguþríleikur Jóns hefur nú allur komið út á ensku í þýðingu Lytton Smith.





