Vatnið kemur 12. des

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Vatnið

Lokabindi stórbrotinnar ritraðar Guðmundar Páls Ólafssonar um náttúru Íslands, Vatnið, er væntanlegt fimmtudaginn 12. desember!

Í gærdag var síðan tilkynnt að Vatnið hlyti tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita. Guðmundur féll frá árið 2012 þegar verkið var langt komið en nánir samverkamenn hans hafa búið það til prentunar, þar á meðal dóttir hans Blær sem sér um útlitið og frændi hans Leifur Rögnvaldsson sem annast hefur ljósmyndahliðina. Í þessari bók nálgast höfundur efnið að vanda úr mörgum ólíkum áttum, enda var hann óvenju fjölhæfur maður: náttúrufræðingur og náttúruverndari, rithöfundur,  lífsspekingur, kafari, teiknari og ljósmyndari. Guðmundur Páll vann árum saman að þessu verki og ferðaðist víða um heim til að fá sem gleggstan skilning á þýðingu vatnsins fyrir lífið á Jörðinni, en áður hafði hann í baráttu sinni gegn virkjunum sett sig sérlega vel inn í vatnafar Íslands.

Verkið verður um fjögur hundruð síður í stóru broti eins og fyrri verkið, prýtt ótal fögrum ljósmyndum sem langflestar eru eftir Guðmund Pál, kortum og skýringarmyndum, og í því verður vatnið krufið til mergjar í allri sinni óumræðilegu auðlegð.

Vatnið er, eins og aðrar bækur í ritröðinni, mikill fengur fyrir alla Íslendinga og rekur smiðshöggið á glæsta arfleið Guðmundar.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd