Ljóðabókin Hugsjór eftir Jóhann Hjálmarsson kom út á dögunum hjá Forlaginu. Í Fréttablaðinu birtist dómur í vikunni sem leið þar sem bókin fékk fjórar stjörnur og glæsilega umsögn. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir segir m.a. bókina „unna af natni og aðdáunarverðri fagmennsku” og segir að „nostrað [hafi] verið alúðlega við hverja einustu ljóðlínu.”
Þetta er fyrsta ljóðabók Jóhanns í níu ár en hann hefur í áranna rás ort ljóð og þýtt.





