Velgengni Íslenskra kónga í Danmörku

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Íslenskir kóngar, kom út í Danmörku í síðustu viku í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen. Bókin hefur þegar fengið frábæra dóma í dönsku blöðunum, til dæmis í menningarkálfi Kristeligt Dagblad þar sem Einar er sagður sannur sagnamaður: „Ég slæ því föstu með konunglegum sjötommunagla að frásagnarlist og húmor skortir ekki hjá Einari Má Guðmundssyni,“ skrifar gagnrýnandi blaðsins, Liselotte Wiemer.

Fyrsta umsögnin  um bókina var í hinu sögufræga blaði Alt for Damerne en þar fékk hún fimm stjörnur af sex og rýnirinn kallaði hana perlu sem Mark Twain hefði viljað njóta. Í Weekendavisen kom fram að bókin væri „tindrandi skemmtileg“ og í dómi Information er Einari Má líkt við Johannes V. Jensen, Halldór Laxness og Dan Turéll.

Danski forleggjarninn Lindhardt og Ringhof hefur síðan farið frumlegar leiðir í kynningu á bókinni. Þannig skörtuðu allir starfsmenn forlagsins Tangavíkur-húðflúri, í anda kápumyndar bókarinnar, í gær. Myndir af því uppátæki ferðuðust víða og þykir skreytingin bara býsna smart.

Einar Már er á leið í upplestrarferð til Danmerkur og kemur meðal annars tvisvar fram á bókmenntahátíðinni Louisiana Literature 2013, með kanónum eins og Sofi Oksanen, Erlend Loe og Per Petterson, Iam McEwan, Klaus Rifbjerg og Zadie Smith.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd