
Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka þakka höfundum sem sendu inn handrit í samkeppnina um Íslensku barnabókaverðlaunin kærlega fyrir þátttökuna. Verðlaunahandritið hefur nú verið valið og haft hefur verið samband við viðkomandi höfund.
Tilkynnt verður um vinningshafann og bókin gefin út í október. Höfundar sem sendu handrit í keppnina geta sótt þau á skrifstofu Forlagsins, Bræðraborgarstíg 7. Ósóttum handritum verður fargað eftir sex mánuði.





