Auður Jónsdóttir rithöfundur situr fyrir svörum á Spyr.is. Þar geta lesendur vefsins sent inn spurningar og munu svörin birtast sem heildstætt viðtal á spyr.is um helgina.
Auður Jónsdóttir er meðal fremstu höfunda sem nú skrifa á íslensku. Í nýrri bók sinni,Ósjálfrátt, blandar hún saman skáldskap og reynslu úr eigin lífi og söguhetjan, Eyja,reynir að skilja fortíðina, skáldskapinn í lífinu, fjölskyldu sína og þýðingu þess að vera skáldkona.
Ósjálfrátt er tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2012 og bóksalar völdu hana þriðju bestu skáldsögu ársins.





