Vovindar 2018 – Bókaráð Hagaskóla, Lestrarvinir, Sævar Helgi Bragason og Ævar Þór Benediktsson hljóta viðurkenningar IBBY

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Sunnudaginn 13. maí veitti Íslandsdeild IBBY sínar árlegu viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar, Vorvinda, við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambands Íslands. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á verkum og starfsemi sem hleypir ferskum og endurnærandi vindum inn í íslenska barnamenningu.

Í tilkynningu frá IBBY segir;

Að þessu sinni voru Vorvindahafarnir fjórir.

Bókaráð Hagaskóla hlaut Vorvinda fyrir framlag sitt til barnamenningar. Bókaráð Hagaskóla samanstendur af 15 nemendum úr unglingadeild Hagaskóla. Ráðið stóð fyrir málþingi fyrr í vetur, Barnið vex en bókin ekki, sem sýndi fram á tilfinnanlegan skort á barna- og unglingabókum á íslensku. Fjölmargir sóttu þingið, meðal annars menntamálaráðherra Íslands sem í kjölfar málþingsins boðaði til aðgerða og setti á fót sérstakan styrktarsjóð til handa barnabókaútgáfu.

Lestrarvinir hlutu Vorvinda fyrir starf sitt. Lestrarvinir leiða saman sjálfboðaliða annars vegar og börn sem þurfa á aðstoð að halda við lestur og fjölskyldur þeirra hins vegar. Sjálfboðaliðarnir lesa fyrir börnin á heimilum þeirra og fara með þeim á bókasöfn.

Sævar Helgi Bragason hlaut Vorvinda fyrir að miðla fróðleik til barna- og unglinga af mikilli eljusemi, ástríðu og fórnfýsi. Þetta gerir hann á hinum ýmsu miðlum en er jafnframt alltaf boðinn og búinn að svara öllum spurningum barna og unglinga, halda fyrirlestra í skólum og hvar þar sem fróðleiksþyrst börn koma saman.

Ævar Þór Benediktsson hlaut Vorvinda fyrir lestrarátak Ævars vísindamanns. Hann hefur staðið fyrir einstökum og metnaðarfullum lestrarátökum árlega síðan árið 2014. Þetta eljusama og fágæta framtak Ævars hefur skilað sér í því að börn á Íslandi hafa lesið 230 þúsund bækur í fjórum lestrarátökum.

Starfsfólk Forlagsins óskar verðlaunahöfunum hjartanlega til hamingju og tekur undir hvatningu IBBY um að þeir haldi áfram að auðga íslenska barnamenningu með starfi sínu og verkum.

Myndir: IBBY á Íslandi

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd