
Frá hugmynd að bók
Í október síðastliðinn hófst tilraunaverkefnið „Frá hugmynd að bók“. Þórhildur Garðarsdóttir, fjármálastjóri Forlagsins, var frumkvöðullinn að verkefninu en markmið verkefnisins var að efla áhuga barna á lestri með því að kynna þeim fyrir útgáfuferli bóka. Nemendur í 6. bekk í Grandaskóla tóku þátt í verkefninu og þann 5. júní kom út Bókin okkar sem inniheldur…















