
- Innbundin
- Rafbók
Líf í bókum
Halldór Guðmundsson
frá 6.990 kr.

Forlagshöfundur
4 bækur
Halldór Guðmundsson er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann nam bókmenntafræði við Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan mag. art.-prófi 1984. Eftir það starfaði hann við bókaútgáfu fram til ársins 2003, lengst af sem útgáfustjóri Máls og menningar. Hann stjórnaði bókmenntakynningu Íslands þegar landið var heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt 2011 og leiddi sams konar verkefni fyrir Noreg 2019 en árin 2012 til 2017 var hann forstjóri Hörpu í Reykjavík. Hann hefur verið formaður Þjóðleikhúsráðs frá 2020.
Halldór hefur skrifað bækur, gert útvarps- og sjónvarpsþætti og samið fjölda ritgerða um bókmenntir. Bók hans Halldór Laxness: Ævisaga kom út 2004, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og hefur verið þýdd á fimm tungumál. Sagnalandið, handbók fyrir ferðalanga sem Halldór sendi frá sér 2021, hlaut verðlaun sem besta bókmenntalega landkynningarbók í Þýskalandi það ár. Nýjasta bók hans er Líf í bókum: Íslenskar bókmenntir í þúsund ár (2026), þar sem íslensk bókmenntasaga er rakin frá öndverðu til samtímans.
Sýnir 1–4 af 4 bókum
Frá 5.000 kr.
Halldór Guðmundsson
frá 6.990 kr.

Dagur Gunnarsson og Halldór Guðmundsson
5.290 kr.

Einar Laxness og Halldór Guðmundsson
5.190 kr.

Dagný Kristjánsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Halldór Guðmundsson, Jón Yngvi Jóhannsson og Silja Aðalsteinsdóttir
5.835 kr.