Halldór Guðmundsson

Forlagshöfundur

3 bækur

Halldór Guðmundsson

Halldór Guðmundsson er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann nam bókmenntafræði við Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan mag. art.-prófi 1984. Eftir það starfaði hann við bókaútgáfu fram til ársins 2003, lengst af sem útgáfustjóri Máls og menningar. Hann stjórnaði bókmenntakynningu Íslands þegar landið var heiðursgestur bókasýningarinnar í Frankfurt 2011 og leiddi sams konar verkefni fyrir Noreg 2019 en árin 2012 til 2017 var hann forstjóri Hörpu í Reykjavík. Hann hefur verið formaður Þjóðleikhúsráðs frá 2020.

Halldór hefur skrifað bækur, gert útvarps- og sjónvarpsþætti og samið fjölda ritgerða um bókmenntir. Bók hans Halldór Laxness: Ævisaga kom út 2004, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og hefur verið þýdd á fimm tungumál. Sagnalandið, handbók fyrir ferðalanga sem Halldór sendi frá sér 2021, hlaut verðlaun sem besta bókmenntalega landkynningarbók í Þýskalandi það ár. Nýjasta bók hans er Líf í bókum: Íslenskar bókmenntir í þúsund ár (2026), þar sem íslensk bókmenntasaga er rakin frá öndverðu til samtímans.

Sía niðurstöður

Hreinsa
Flokkar
Snið
Verð
0 kr.3.000 kr.

Sýnir 1–3 af 3 bókum

Undir 3.000 kr.
Sagnalandið – Dagur Gunnarsson og Halldór Guðmundsson
  • Mjúk spjöld
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Sagnalandið

Dagur Gunnarsson og Halldór Guðmundsson

frá 1.990 kr.

Karfan þín

Valmynd