Hjólabókin 3. bók framhald: Suðurnes og nágrenni

Almenn rit

Hjólabókin 3. bók framhald: Suðurnes og nágrenni

eftir Ómar Smári Kristinsson

2021 · 112 bls.

Veldu snið

2.690 kr.

Til á lager

Um bókina

Þetta er sjálfstætt framhald af Hjólabók sem fjallaði um sama svæðið og þessi bók. Aðrar leiðir samt, undantekningarlítið. Svæðið afmarkast af Reykjanesskaganum, Hengilssvæðinu og Hvalfirði. Höfuðborgarsvæðið er stór hluti af umfjöllunarefni bókarinnar.

Hér er lýst átta hjólreiðaleiðum, auðveldum og erfiðum, sem eiga það sameiginlegt að þær liggja í hring og hægt er að loka hringnum á einum degi. Hverri leiðarlýsingu fylgja tillögur að fleiri ferðum. Auka kaflar eru um aðrar hjólaleiðir og um hagnýt efni.

Helstu upplýsingar um hverja leið eru útlistaðar í máli, á kortum og með hæðarprófílum. Allar leiðirnar eru teiknaðar upp með litaskala sem útskýrir hver brattinn er mikill. Um 200 ljósmyndir gefa innsýn í landshlutann, hvernig þar er umhorfs og hvers konar vegir og stígar bíða lesenda.

Góða ferð
Ómar Smári Kristinsson

Karfan þín

Valmynd