Húsið okkar brennur
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2019 | 303 |
|
||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.490 kr. | Setja í körfu | |
Kilja | 2019 | 303 |
|
||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Greta Thunberg hefur verið á allra vörum síðan hún hóf verkfallsbaráttu sína til að þrýsta á aðgerðir í loftslagsmálum. En hvernig varð sænsk unglingsstúlka, sem hafði ekki getað talað við neinn utan fjölskyldunnar í mörg ár, að heimsþekktri baráttu- og ræðukonu?
Í þessari bók segja hún og fjölskylda hennar sögu sína, sögu af daglegu lífi sem snýst um Aspergerheilkenni, átröskun, ADHD, óperusöng og – ekki síst – umhverfisvernd. Húsið okkar brennur er einlæg og óhefðbundin frásögn af glímu fjölskyldunnar við óvægið samfélag nútímans. Það er móðir Gretu, Eurovisionstjarnan Malena Ernman, sem lýsir því hvernig dóttir hennar yfirsteig mikla erfiðleika til að berjast gegn stærstu ógn sem nokkurn tímann hefur steðjað að mannkyninu.
Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 7 klukkustundir og 42 mínútur að lengd. Lára Jóhanna Jónsdóttir les.
1 umsögn um Húsið okkar brennur
gudnord –
„Það hljóta allir að hrífast með Gretu Thunberg, ungri stúlku sem sigrast hefur á ótrúlegu mótlæti og hefur djörfung og dug til að segja þjóðarleiðtogum til syndanna.“
Stefán Einar Stefánsson / Morgunblaðið