Í huganum heim

Barna- og unglingabækur

Í huganum heim

eftir Guðlaug Jónsdóttir og Hlíf Una Bárudóttir

2021 · 188 bls.

Veldu snið

Um bókina

Didda er tíu ára stelpa sem býr í sveit þar sem er fjöldi krakka, líf og fjör. Henni finnst gaman að skrifa og smám saman fyllist bókin hennar af sögum. Hvernig gat sama tyggjóklessan enst í marga daga? Er hægt að aldursgreina hrossaskít? Hversu margar hundasúrur er óhætt að borða í einu? Getur tíu ára krakki klippt sköllóttan karl?

Guðlaug Jónsdóttir býður okkur í heillandi tímaferðalag til bernskuáranna með þáttöku í hressilegum ævintýrum. Við kynnumst dýrunum, sveitastörfunum og leikjum barnanna þar sem hættur leynast víða. Á gullfallegum myndum Hlífar Unu Bárudóttur sprettur lífið á Melum ljóslifandi fram.

Í huganum heim er falleg og bráðskemmtileg bók sem brúar kynslóðabilið – kjörin til samlesturs barna og fullorðinna.

Karfan þín

Valmynd