Inniræktun matjurta

Almenn rit

Inniræktun matjurta

Zia Allaway

Veldu snið

  • „Inniræktun er krydd í tilveruna (…) himna­send­ing fyr­ir þá sem hef­ur skort ráð og kannski dáð til þess að koma sér upp inni­ma­t­jurta­g­arði sem bragð er að.“

    Morgunblaðið · Val­gerður Þ. Jóns­dótt­ir

Um bókina

Langar þig til að rækta grænmeti, krydd og ávexti heima? Inniræktun matjurta sýnir í máli og myndum hvernig unnt er að rækta ýmislegt ætilegt innan veggja heimilisins.

  • Lærðu að nýta birtu og rými sem best
  • Sjáðu hvað hægt er að rækta – og hvernig
  • Lífgaðu upp á heimilið með plöntum sem gefa af sér

Hér er því lýst á einfaldan og skýran hátt, skref fyrir skref, hvernig rækta má margvíslegar matjurtir innandyra; allt frá salati og kryddjurtum upp í ávaxtatré.

Fjölbreytnin á sér fá takmörk og hér er meðal annars sýnd ræktun í krukkum, kössum, hillum, kökuformum, hengipottum og á borðum. Jafnframt eru ótal ráð og leiðbeiningar um hvernig búa má til aðstöðu og ílát fyrir ræktun.

Inniræktun matjurta er bók fyrir alla sem hafa áhuga á að fá sína eigin uppskeru af kryddjurtum, grænmeti, ætum blómum og ávöxtum allan ársins hring.

Sýnishorn úr bókinni má sjá með því að smella á „Skoða bók“ fyrir ofan kápumyndina hér til vinstri.

Karfan þín

Valmynd