Kirkjur Íslands: 26-28. bindi – Vestfjarðarprófastsdæmi

Almenn rit

Kirkjur Íslands: 26-28. bindi – Vestfjarðarprófastsdæmi

eftir Jón Torfason og Þorsteinn Gunnarsson

2017

Veldu snið

6.790 kr.

Til á lager

Um bókina

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum.

Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 29 bindi og útgáfunni ljúki 2018.

Í bindunum þremur, sem nú koma út, er fjallað um 28 friðaðar kirkjur í Vestfjarðaprófastsdæmi. Bindin eru prýdd fjölda ljósmynda, sem Ívar Brynjólfsson ljósmyndari Þjóðminjasafns hefur tekið og teikningum af kirkjunum 28.

Karfan þín

Valmynd