Um bókina
Í þessu aðgengilega og fróðlega riti lýkur Magnús Lyngdal upp leyndardómum klassískrar tónlistar – rétt eins og hann hefur lengi gert í vinsælum pistlum og þáttaröðum í Ríkisútvarpinu en einnig á þéttsetnum námskeiðum Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Magnús er ástríðufullur fræðari; fundvís á áhugaverðar staðreyndir, skemmtilegar sögur og ekki síst vandaðar upptökur, sem hann hefur sett saman í spilunarlista sem auðvelt er að nálgast á streymisveitum. Þannig leiðir hann lesendur í gegnum tónlistarsöguna, frá miðöldum til nútímans, og kynnir þeim mörg af helstu verkum tónbókmenntanna.
Eftir Magnús hefur einnig komið út í sömu ritröð Ópera – Á ferðalagi um sögu listformsins. Bækurnar henta bæði byrjendum og þeim sem vilja auka við þekkingu sína.













