Leitin að Blóðey – ótrúleg ævintýri afa

Barna- og unglingabækur

Leitin að Blóðey – ótrúleg ævintýri afa

Guðni Líndal Benediktsson

4
Veldu snið

3.790 kr.

Til á lager

  • „Sagan er vel skrifuð og fyrst og fremst brjálæðislega fyndin …. Sagan er lipurlega

    framsett og augljóst er að höfundur hefur afar gaman að því að skrifa hana, það skín gegn og sagnagleðin smitar lesandann. Hún er þétt og heildstæð, þótt sögumaður komi sífellt inn alls kyns útúrdúrum sem eru hver öðrum fyndnari … Bráðfyndin saga með frábærum persónum sem ætti að höfða bæði til barna og foreldra þeirra.“

    Fréttablaðið · Halla Þórlaug Óskarsdóttir

Um bókina

Þegar Kristján er sendur snemma í rúmið ákveður afi gamli að trúa honum fyrir ansi svakalegri sögu. Þetta er ótrúlegt ævintýri sem gerðist á hans yngri árum þar sem við sögu koma galdramenn og ninjur, ljónhestar og drekar, ófreskjur og tröll – og dularfull eyja sem hvergi finnst á korti. Afi segir að sagan sé sönn en þó er hún ótrúlegri en nokkuð sem Kristján hefur heyrt.

Leitin að Blóðey er fyrsta bók Guðna Líndal Benediktssonar, æsispennandi og bráðfyndin saga fyrir 7 til 12 ára lesendur sem bar sigur úr býtum í samkeppninni um Íslensku barnabókaverðlaunin 2014.

Myndir gerði Ivan Cappelli.

Karfan þín

Valmynd