Um bókina
Manntalið 1703 er elsta manntal sem tekið var á Íslandi og er jafnframt elsta varðveitta heildarmanntal í heimi þar sem getið er heimilis, aldurs og stöðu íbúanna. Manntalið er varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands og er einn mesti dýrgripurinn í safninu. Árið 2013 var manntalið tekið á skrá UNESCO yfir Minni heimsins og í tilefni af þeim tímamótum og 135 ára afmæli Þjóðskjalasafns árið 2017 var þessi bók gefin út. Í henni er fjallað um tilurð og framkvæmd þessarar merkilegu samfélagsúttektar sem manntalið var. Farið er yfir sögu manntalsins, einkum tölfræði- og skjalasögu þess, og greint frá því hvernig það kom til að manntalið var viðurkennt af UNESCO sem mikilvæg heimild fyrir allt mannkyn.













